{
  "version": "huxa-godafraedi-0.1",
  "date": "2026-10-24",
  "status": "Lesflipi með ritstýrðum dæmum; ekki sjálfvirk þýðing eða sjálfstæð staðfesting tilgátna.",
  "basis": "Byggt á HuXa-hlutverkaorðum 0.1. Goðalykill 0.2 stendur óbreyttur sem fyrra rannsóknargagn.",
  "categories": [
    {
      "id": "knowledge",
      "label": "Þekking og orð"
    },
    {
      "id": "action",
      "label": "Athafnir og samskipti"
    },
    {
      "id": "world",
      "label": "Heimur og tengsl"
    }
  ],
  "entries": [
    {
      "id": "O01",
      "term": "Yggdrasill",
      "plain_role": "heimstréð",
      "malkerfi_proposal": "heildin sem tengir heimana",
      "use_condition": "Þegar tengsl, undirstaða eða álag eru viðfangsefnið. Halda tré, rótum og limum í textalægum lestri.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "15-16"
        },
        {
          "source": "S4",
          "locus": "31-35"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O02",
      "term": "Óðinn",
      "plain_role": "Óðinn, sá sem leitar þekkingar",
      "malkerfi_proposal": "þekkingarleitandinn",
      "use_condition": "Við þekkingarleit. Við stjórn, átök eða blekkingu þarf annað hlutverksorð eða nafnið eitt.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S5",
          "locus": "1-9"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O03",
      "term": "Dvergar",
      "plain_role": "smiðirnir / mótendurnir",
      "malkerfi_proposal": "þau sem móta og búa til",
      "use_condition": "Smiðir við smíði; mótendur við mótun. Norðri, Suðri, Austri og Vestri geta verið stoðir himinsins í Gylfaginningu 8.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S3",
          "locus": "43"
        },
        {
          "source": "S2",
          "locus": "10"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "8"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O04",
      "term": "Jötnar",
      "plain_role": "fróðir jötnar / uppalendur / mótherjar",
      "malkerfi_proposal": "frumöfl / fornir fræðarar / mótstöðuöfl",
      "use_condition": "Velja aðeins það sem brotið sýnir. Frumöfl er skapandi kostur í upphafssögu. Vafþrúðnir er fróður viðmælandi; jötnar Völuspár 2 ólu mælandann.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S5",
          "locus": "1-9"
        },
        {
          "source": "S2",
          "locus": "2-3"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "5-8"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O05",
      "term": "Goð / regin",
      "plain_role": "þau sem ráða eða ráðgast",
      "malkerfi_proposal": "þau sem skipuleggja heiminn",
      "use_condition": "Við ráðagerð og skipun, t.d. tímaskiptingu. Trúarlegt heiti helst í venjulegum lestri.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S2",
          "locus": "5-6"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O06",
      "term": "Huginn og Muninn",
      "plain_role": "hrafnarnir Huginn og Muninn",
      "malkerfi_proposal": "hugsun og minni",
      "use_condition": "Þegar ferð eða miðlun hrafnanna er í brotinu. Varðveita að þeir séu tveir.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S4",
          "locus": "20"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O07",
      "term": "Mímir",
      "plain_role": "hinn fróði ráðgjafi",
      "malkerfi_proposal": "ráðgjafinn sem miðlar þekkingu",
      "use_condition": "Við ráðgjöf. Ekki jafna sjálfkrafa Mími og Munin þótt hvort tveggja geti tengst þekkingu.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S6",
          "locus": "4"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O08",
      "term": "Þór",
      "plain_role": "sá sem beitir afli",
      "malkerfi_proposal": "verndarinn / sá sem brýtur mótstöðuna",
      "use_condition": "Verndarinn aðeins við verndarathöfn. Halda ofbeldi og afleiðingum sýnilegum.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S3",
          "locus": "11"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O09",
      "term": "Heimdallur",
      "plain_role": "vörðurinn",
      "malkerfi_proposal": "athygli sem gætir markanna",
      "use_condition": "Vörðurinn er skýrasta orðalag í frásögn. Athygli er sérstakt hugrænt lag.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "27"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O10",
      "term": "Forseti",
      "plain_role": "sáttasemjarinn",
      "malkerfi_proposal": "sá sem sættir deilur",
      "use_condition": "Við sáttahlutverkið; ekki búa til aðferð sem textinn segir ekki frá.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "32"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O11",
      "term": "Bragi",
      "plain_role": "orðsmiðurinn",
      "malkerfi_proposal": "sá sem kemur reynslu í orð",
      "use_condition": "Við skáldskap og orðsnilld. Við hótun eða gjafaboð halda nafni eða lýsa þeirri athöfn.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S3",
          "locus": "17"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "26"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O12",
      "term": "Freyr",
      "plain_role": "sá sem ræður vaxtarskilyrðum",
      "malkerfi_proposal": "vaxtaraflið",
      "use_condition": "Við ár og gróður; þekkingarvöxtur er frekara hugrænt skref.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "24"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O13",
      "term": "Loki",
      "plain_role": "sá sem raskar / sá sem finnur ráð",
      "malkerfi_proposal": "röskunaraflið / úrræðamaðurinn",
      "use_condition": "Fylgja athöfninni: getur bæði komið málum í ólag og fundið leið úr vanda.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S3",
          "locus": "2-3"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "33"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O14",
      "term": "Nornir",
      "plain_role": "þær sem móta lífshlaupið",
      "malkerfi_proposal": "þau áhrif sem móta framvinduna",
      "use_condition": "Varðveita þrjár nafngreindar verur þar sem þær eru þrjár. Við umhirðu trésins lýsa umhirðunni.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S2",
          "locus": "20"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "15-16"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O15",
      "term": "Mímisbrunnur",
      "plain_role": "brunnur viskunnar",
      "malkerfi_proposal": "uppspretta þekkingar",
      "use_condition": "Halda brunni og drykk í textalægum lestri. Þekkingaruppspretta er myndlíking í Málkerfislestri.",
      "category": "knowledge",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "15"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O16",
      "term": "Urðarbrunnur",
      "plain_role": "brunnurinn við heimstréð",
      "malkerfi_proposal": "uppspretta viðhalds og endurnýjunar",
      "use_condition": "Við umhirðu trésins. Ekki leggja sjálfkrafa að jöfnu við Mímisbrunn.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "15-16"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O17",
      "term": "Bifröst",
      "plain_role": "brúin milli jarðar og himins",
      "malkerfi_proposal": "tengileiðin milli sviða",
      "use_condition": "Brú og ferð í textalægum lestri. Svið er viðbót í hugræna lestrinum.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "13,15"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O18",
      "term": "Níðhöggur",
      "plain_role": "sá sem nagar ræturnar",
      "malkerfi_proposal": "aflið sem tærir undirstöðuna",
      "use_condition": "Þegar um nag eða skaða við rætur er rætt. Ekki sjálfkrafa öll eyðing eða illska.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S4",
          "locus": "35"
        },
        {
          "source": "S1",
          "locus": "16"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O19",
      "term": "Ratatoskur",
      "plain_role": "sendiboðinn",
      "malkerfi_proposal": "boðberinn / rógberinn",
      "use_condition": "Rógberinn þegar flutt eru öfundarorð; annars lýsa aðeins flutningi boða.",
      "category": "action",
      "references": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "16"
        },
        {
          "source": "S4",
          "locus": "32"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O20",
      "term": "Ginnungagap",
      "plain_role": "rýmið áður en heimurinn mótast",
      "malkerfi_proposal": "hið ómótaða",
      "use_condition": "Skapandi lýsing á upphafsástandi. Ekki fullyrðing um tómarúm nútímaeðlisfræði.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S2",
          "locus": "3"
        }
      ],
      "layer": "Hlutverksorð og túlkun"
    },
    {
      "id": "O21",
      "term": "Heimar",
      "plain_role": "heimar / tilverusvið",
      "malkerfi_proposal": "svið reynslunnar",
      "use_condition": "Aðeins í sérstaklega völdum hugrænum lestri. Halda fjölda og skrá hvaða svið eru tilgáta.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S2",
          "locus": "2"
        }
      ],
      "layer": "Vinnutilgáta"
    },
    {
      "id": "O22",
      "term": "Mjötviður",
      "plain_role": "mjötviður, með skýringu",
      "malkerfi_proposal": "það sem við miðum við / viðmiðið",
      "use_condition": "Fyrirliggjandi verkefnistillaga. Ekki orðabókarmerking sem hefur verið staðfest í þessari rannsókn.",
      "category": "world",
      "references": [
        {
          "source": "S2",
          "locus": "2"
        }
      ],
      "layer": "Vinnutilgáta"
    }
  ],
  "examples": [
    {
      "id": "yggdrasill",
      "title": "Yggdrasill · álag á heildina",
      "source": "S4",
      "locus": "35",
      "scope": "Eitt erindi. Frumtexti úr raftexta Bugge; línuskipting varðveitt.",
      "original": "Ascr Yggdrasils\ndrygir erfiði\nmeira en menn vm viti:\nhiortr bítr ofan,\nenn a hliþo fv́nar,\nscerþer Níðhꜹggr neþan.",
      "readable": "Askurinn Yggdrasill þolir meira álag en menn vita. Hjörtur bítur hann að ofan, hann fúnar á hliðinni og Níðhöggur skemmir hann að neðan.",
      "role_reading": "Yggdrasill, heimstréð, þolir meira álag en menn vita. Hjörtur bítur tréð að ofan, það fúnar á hliðinni og Níðhöggur nagar það að neðan. Í Málkerfislestri okkar verður tréð að mynd heildar sem tengir heimana og ber álag úr ólíkum áttum.",
      "added": "„Heildin sem tengir heimana“ er túlkun okkar með hliðsjón af lýsingu trésins í Gylfaginningu 15. „Nagar“ styðst við Gylfaginningu; erindið segir „skerðir“.",
      "preserved": "Tréð, hjörturinn og Níðhöggur eru áfram aðgreind. Álagið að ofan, á hliðinni og að neðan helst sýnilegt.",
      "terms": [
        "O01",
        "O18"
      ],
      "question": "Verður samband hlutanna skýrara þegar heimstréð er lesið sem heild?",
      "context_refs": [
        {
          "source": "S1",
          "locus": "15–16"
        }
      ]
    },
    {
      "id": "odinn",
      "title": "Óðinn · leit að þekkingu",
      "source": "S5",
      "locus": "5, fyrstu þrjár línur",
      "scope": "Valið brot úr erindi. Ferðin og orðsnilld jötunsins eru viðfangsefnið.",
      "original": "For þa Oðinn\nat freista orþspeci\nþess ins alsvinna iotvns;",
      "readable": "Þá fór Óðinn að reyna orðsnilld hins alvitra jötuns.",
      "role_reading": "Þá fór Óðinn, þekkingarleitandinn, að reyna orðsnilld jötunsins, hins fróða viðmælanda.",
      "added": "„Þekkingarleitandinn“ lýsir tilgangi ferðarinnar í erindum 1–6. „Fróður viðmælandi“ dregur fram samtalið; það er vægara orðalag en „alvitur“.",
      "preserved": "Óðinn fer; jötunninn er sá sem hann reynir. Hlutverkin verða ekki að einum almennum hugsunarferli.",
      "terms": [
        "O02",
        "O04"
      ],
      "question": "Hjálpar starfsheitið við að skilja tilgang Óðins í þessu broti?",
      "context_refs": []
    },
    {
      "id": "dvergar",
      "title": "Dvergar · smíði og verkaskipting",
      "source": "S3",
      "locus": "43, brot úr smíðasögu",
      "scope": "Stytt tilvitnun. Úrfelling er merkt með […]; áframhald skilyrðisins er skýrt hér.",
      "original": "þá lagði Sindri svínskinn í aflinn ok bað blása Brokk ok létta eigi fyrr […]",
      "readable": "Sindri lagði svínskinn í aflinn og bað Brokk að blása og hætta ekki fyrr en Sindri tæki það úr aflinum.",
      "role_reading": "Sindri, smiðurinn, lagði svínskinn í aflinn og bað Brokk, sem sá um blásturinn, að halda honum gangandi þar til Sindri tæki skinnið út.",
      "added": "Nútímamálið og Málkerfislesturinn ljúka skilyrðinu úr framhaldi setningarinnar. „Smiðurinn“ og „sá um blásturinn“ lýsa verkaskiptingunni í þessu atriði.",
      "preserved": "Tveir gerendur, fyrirmæli Sindra, neitunin „hætta ekki“ og tímaskilyrðið haldast. Þetta er ekki endursögn allrar smíðasögunnar.",
      "terms": [
        "O03"
      ],
      "question": "Sérðu betur hver gerir hvað þegar hlutverkin fylgja nöfnunum?",
      "context_refs": []
    },
    {
      "id": "jotnar",
      "title": "Jötnar · þau sem ólu mig",
      "source": "S2",
      "locus": "2, fyrstu fjórar línur",
      "scope": "Valið brot úr samræmdum texta Bugge. Síðari helmingur erindisins er ekki þýddur hér.",
      "original": "Ek man jötna\nár um borna,\nþá er forðum\nmik fœdda höfðu;",
      "readable": "Ég man jötnana sem fæddust í árdaga, þá sem ólu mig forðum.",
      "role_reading": "Ég man jötnana, uppalendur mína frá árdögum, sem ólu mig forðum.",
      "added": "„Uppalendur“ dregur fram tengsl mælandans og jötnanna. Við bætum ekki við að þeir hafi kennt ákveðin fræði eða verið óvinir.",
      "preserved": "Röddin „ég“, minningin og þeir sem ólu mælandann. Árdagar vísa í frumtextanum til fæðingar jötnanna.",
      "terms": [
        "O04"
      ],
      "question": "Breytir orðið „uppalendur“ því hvernig þú sérð jötnana?",
      "context_refs": []
    },
    {
      "id": "heimdallur",
      "title": "Heimdallur · vörður við mörkin",
      "source": "S1",
      "locus": "27",
      "scope": "Ein setning úr lýsingu Heimdallar. Fornafnið „hann“ vísar til hans.",
      "original": "Hann er vörðr goða ok sitr þar við himins enda at gæta brúarinnar fyrir bergrisum.",
      "readable": "Heimdallur er vörður goðanna. Hann situr við enda himinsins og gætir brúarinnar fyrir bergrisum.",
      "role_reading": "Heimdallur, vörður goðanna, gætir brúarinnar við enda himinsins fyrir bergrisum. Í hugrænum lestri okkar er hann mynd af athygli sem gætir markanna.",
      "added": "Athygli og hugræn mörk eru túlkunarlag okkar. Textastaðurinn sjálfur lýsir verði, brú og bergrisum.",
      "preserved": "Vörðurinn, staðsetningin, brúin og þau sem vörnin beinist að fylgja áfram.",
      "terms": [
        "O09",
        "O17"
      ],
      "question": "Hvenær hjálpar hugmyndin um athygli og hvenær skyggir hún á frásögnina?",
      "context_refs": []
    }
  ],
  "sources": [
    {
      "id": "S1",
      "title": "Gylfaginning",
      "url": "https://www.heimskringla.no/wiki/Gylfaginning"
    },
    {
      "id": "S2",
      "title": "Völuspá",
      "url": "https://etext.old.no/Bugge/voluspa/voluspa6.html",
      "note": "Erindanúmer fylgja samræmdum vinstri dálki Bugge. Handritadálkarnir sýna lesbrigði."
    },
    {
      "id": "S3",
      "title": "Skáldskaparmál",
      "url": "https://www.heimskringla.no/wiki/Sk%C3%A1ldskaparm%C3%A1l"
    },
    {
      "id": "S4",
      "title": "Grímnismál",
      "url": "https://etext.old.no/Bugge/grimnis.html"
    },
    {
      "id": "S5",
      "title": "Vafþrúðnismál",
      "url": "https://etext.old.no/Bugge/vaftrudnis.html"
    },
    {
      "id": "S6",
      "title": "Ynglinga saga 4",
      "url": "https://is.wikisource.org/wiki/Heimskringla/Ynglinga_saga/4"
    }
  ],
  "selection_rules": [
    "Greina veru, stað, hlut eða athöfn áður en heiti er valið.",
    "Velja hlutverk eftir atburði; ekki eingöngu leita og skipta út orði.",
    "Halda gerendum aðgreindum og varðveita tölur, neitanir, rödd og atburðaröð.",
    "Nota kunnugleg starfsorð og sagnir; gæta þess að einföldun verði ekki nýtt tæknimál.",
    "Skýrt merkja samantekt sem fellir gerendur eða atvik brott.",
    "Óleyst orð fá skýringu, ekki tilbúið fast gildi."
  ],
  "unresolved": [
    "Hænir/óður: engin ný föst þýðing hér.",
    "Íviðjur/íviðir: lesbrigði og merking óleyst; ekki skipta út fyrir tölur eða ferla.",
    "Goðafræði er safn frásagna og hugmynda um goð; heitið merkir ekki sjálfkrafa heilakort eða forrit."
  ]
}
