Skip to Main Content This website was built on Wix. Create yours today. Get Started Smásögur Smásögur Höfundur Samband Deila Eru Eddurnar 4000 ára Eru Eddurnar 4000 ára? Árið 1902 var flokkur ítalskra fornleifafræðinga við rannsóknir og uppgröft á Phaistos höllinni á eyjunni Krit i Miðjarðarhafinu. Stjórnandi flokksins hét F. Halbherr, og þann 3. Juli opnaði einn af samstarfsmönnum hans, L. Pernier, ferkantað geymsluherbergi í útbyggingu sjálfrar hallarinnar. Þar fann hann dularfulla skífu gerða úr finum leir. Margir sérfræðingar álita, að leirinn i skifunni sé ekki upprunninn frá Krit. En skífan, sem var alsett vel gerðum táknum, bæði aðframan og aftan, vakti mikla athygli, þegar hún fannst. Og enn þann dag i dag má segja, að hann sé einn af merkustu forleifafundum vísindanna. Krit var á sinum tíma áhrífamesta menningarmiðstöð Evrópu. Fornleifarannsóknir benda til þess, að áhrifa Krítarbúa hafi gætt um alla Evrópu og þeir hafi stundað verslun um alla álfuna. Menningin á Krit er undanfari menningarinnar i Grikklandi, er siðar átti eftir að móta alla Evrópu. Menningin á Krít var I hámarki á öðru árþúsundinu fyrir Krist burð, en álitið er, að hún hafi liðið undir lok um 1200 fyrir Krist. Phaistos skífan getur því ekki verið yngri en það. Það sem vakti strax mikla athygli á skifunni. þegar hún fannst, var sú að- ferð, sem notuð var til þess að þrykkja táknin á skífuna. Þau voru greinilega gerð með sérstökum. tilbúnum táknstöfum. sem þrýst var ofan i leirinn, hverjum fyrir sig, Aðferðin var með öðrum orðum ekki ósvipuð nútíma prentaðferðum, þar sem leturstöfum er raðað saman og þrýst á pappir. Fjöldi táknanna. sem notuð eru á skifunni, er 45, og eru þau sýnd á sérmynd, sem fylgir með þessari grein. Eins og sést á meðfylgjandi myndum er textanum raðað á skífuna i spíralformi. Byrjað er i miðju skífunnar. en siðan vindur textinn sig áfram i átt að útjaðri hennar. Mikið hefur verið reynt að þýða textann, og sérfræðingar tilheyrandi hinum ýmsu tungumálaflokkum. Hafa spreytt sig við diskinn. Samt er það svo, að enn þann dag i dag biður skífan eftir því að opinbera leyndardóm sinn. þvi engum heimur enn tekist að þýða hana. Eins og ótalmargir á undan mér, hef ég þreytt hugskák við skífuna, og komist að ákveðnum niðurstöðum. Það er tilgangur minn með þessari grein, að skýra frá þeim. Fyrir það fyrsta, vil ég benda á, að það er mikill skyldleiki milli Völuspár íslensku Eddanna og Phaistos disksins. Og þýðing mín á disknum er að miklu leyti byggð á Völuspánni. Á þann hátt stend ég auðvitað töluvert betur að vígi heldur en aðrir, því ég virðist vera sá fyrsti, sem tek eftir þessum skyldleika. Þó er rétt að benda á það strax að viðhorf mín og sjónarmið til Eddanna eru töluvert öðruvísi, heldur en það sem almennt er viðurkennt. En frá þeim sjónarmiðum mun ég greina seinna. Mynd(Phaistossteinninn, báðar hliðar. ) Hins vegar vil ég benda á það, að texti Phaistos skífunnar er spá um svipað efni og Völuspáin. Ég mun nú birta þýðinguna orð fyrir orð og staf fyrir staf, og nota um leið þær merkingar, sem teiknaðar hafa verið á myndirnar af skifunni, sem fylgja með þessari grein. Fremri hlið skífunnar hefur merkingarnar Al til A31, en bakhliðin merkingarnar B1 til B30. Þýðing Phaistosdisksins. Al: Ættir Átta Ár. A2: Jötunn Ógreinilegur. A3: (ekki regla á:) 9 Heimar, 9 ivíður, Mjötviður mær, Búkur, Bak, Hugur, Höfuð. A4: Ættir Sigtíva Ar. A5: Mjötviður Greindi I. A6: Jötunn ógreinilegur i Huga Manns. A7: Hugur óx Upp. A8: Greindi Auga Vaff Konu. A9: (einnig) Búk, Nef, Munn, Augu, Bak, Hug, Höfuð. AIO: Óx til Vinstri Hugur manns. A11: Jötunn Hófur. A12: K var Ár Drekinn i Líkama Manns. A13: Óx til Hægri Hugur Manns. A14: 1 Fiskur A15: (i reglu) 9 Heimar, 9 Íviður, Mjötviður mær, Búkur, Bak, Hugur Höfuð. A16: Óx til Hægri Hugur Manns. A17: Jötunn Hófur. A18: K sem var Ar Drekinn á Líkama manns. A19: Skreið og Klauf. A20: Ættir I og M i Hug Manns. A21: Víkingur (þ.e. K) man Kjúkur Jötuns. A22: Mjötviður Greindi Kjúkur (neðsti) Hug Manns. A23: Mjötviður Óx upp. A24: ? Vaff Konunnar Huga Manns. A25: Táknið er Skaut Likamans. A26: Hugur er K S Likamans (Hugur er XLfkhamans). A27: Fisk Man „svona"Hugur Manns. A28: Skriðu 2 Hundar(Dogs, Grey). A29: X upp. A30: Hugur Man Skakka Höllu. A31: Nef (ilmskynjun) Jötuns er ógreinileg i Hug Manns. Hlið B Phaistos B1: X(þ.e.KS). B2: KL Skriður nið-.ur. B3: KL Mjötviður Konu i Hug Manns. B4: KL Klýfurs Kindir Ragna(ÆrNefs). B5: Merki KL gerir X (með 1 i miðju X). B6: Höll KLK. B7: KSK. B8: Mjötviður Lokast. B9: Dreki I (KL) Skriður á Likhama. B10: Merki KL gerir XL. B11: KS er Hundur. B12: Merki Hunds ógreinilegt. B13: Merki KL upp. B14: Jötuns Líkami Nef Höfuðs. Bl5: Fiskur Klýfur M i Mjötvið Konu. B16: Jötunn Fisks Ofugur. B17: Sker Nef og Augu. B18: Mjötvíður Fangi i Höll, Höll öfug. B19: Jötuns Ættir Dreki Líkamans. B20: Mun L vaxa i Manninum. B21: Mjötviður Mun Muna Höllu K. B22: Drekinn ógreinilegur i t viðjum X (hugans). B23: Verður Jötunn Ógreinilegur, K ÖXÍ. B24: Fiskur Klýfur Jötun Ógreinilega. B25: Vin Mun Skera K-ið (drekann). B26: Mjötviður ekki lengur Fangi i Höllu Fisks. B27: Líkami Drekans X. B28: PL i í viðjum Manns. B29: Mjötviður Kassi Líkamans. B30: K Man X Hugur Manns. Þýðing þýðingarinnar Já, nú veit lesandinn, hvers vegna það hefur verið svo erfitt að þýða textann á Phaistos skifunni. Sennilega er lesandinn litlu nær um innihald hans. Ég verð að biðja hann að hafa þolinmæði og gleyma því ekki, að milli hans og þess, sem ritaði diskinn eru ef til vill meira en 4000 ár. Ég mun útskýra þýðingu mína lið fyrir lið, en áður enég byrja á þvi, ætla ég að ræða svolitið um nokkur frumatriði máli mannsins. Tungumál mannsins, tákn og hljóð, orð hans og setningar eru svo mikilvægur hluti imanninum, að erfitt er að skilja þar á milli. Orð mannsins eru maðurinn sjálfur, því án þeirra væri hann ekki maður. Þróun mannsins sjálfs er því nátengd þróun málsins og táknanna hans. Mannkynssagan greinir frá því, hvernig menning mannsins hefur þróast, og hvernig „miðstöð" menningarinnar hafi færst til i heiminum síðustu árþusundirnar. Ferill þessarar „miðstöðvar" er i fáum dráttum þessi:Suðurtasía, Egyptaland, Krit, Grikkland,Ítalía, Spánn og Mið-Evrópa,Frakkland, England, USA. Tungu mál er svo náskylt „menningu", að hægt er að segja, að það hafi i raun og veru verið tungumál hinna ólíku þjóða, sem um tíma hafi leikið aðalhlutverkið i þróun mannfólksins á jörðinni. Af þeirri ástæðu má því segja, að það sé enska tungumálið, sem leiki aðalhlutverkið i dag, eins og vinsældir til dæmis sönglaga bera vott um. Hvert tungumál fyrir sig fékk ekki aðalhlutverkið, fyrr en þróunin hafði náð því stigi sem var nákvæmlega rétt fyrir það. Enskan er siðasta tungumálið i þessari keðjuverkun, enda ber öllum fróðum mönnum saman um það, að enska tungumálið sé mjög raunhæft fyrir nútímamanninn. Með þessum orðum vil ég leggja áherslu á það, að þróun mannsins i heild er jafnframt þróun tungumálanna. Að mínu áliti er texti Phaistos disksins spádómur um þróun ákveðinna tákna i táknmáli mannsins. Táknin sjálf hafa farið i gegnum ákveðna þróun, alveg eins og maðurinn sjálfur. Nú er það svo, að ekkert i fari mannsins hefur verið veitt minni athygli nú á siðari tímum en einmitt táknin hans. Þau hafa verið tekin sem sjálfsagður hlutur, og litilli hugsun hefur verið eytt i þau. Og hin ólíku táknmál jarðarinnar hafa ýtt undir þá skoðun, að það sé i raun og veru ekkert kerfi, sem liggi undir gerð táknanna. Eitt af þvi, sem ég vona, að ég eigi eftir að gera, er það að sýna fram á, hve sú skoðun er i raun og veru alröng. Það skiptir til dæmis miklu máli, hvernig táknin lita út. Stafrófið, eins og maðurinn utanbókar, er i raun og veru sá hornsteinn, sem kerfi tungumálsins er byggt á. Talnarunan: Einn Tveir Þrír Fjórir Fimm Sex Sjö Átta Níu, er jafnvel þýðingarmeiri, því sjálf töluröðin (hugtökin) er það sem öll tungumál jarðarinnar hafa sameiginlegt. Og það hefur geysimikil áhrif út frá sér i tungumálinu, hvað hinir einstöku tölustafir eru kallaðir. Talan 1 er kölluð: Einn. Talan 2 er kölluð: Tveir o.s.frv. Nú ætla ég að halda fram ákveðinni fullyrðingu, sem sannfæring mín og viðhorf hafa skapað. Ég vona, að ég eigi seinna meir eftir að sanna hana. Mynd: Táknin á Phaistos steininum Hún er þessi: Allir Asar, Asynjur, Álfar, Dvergar Jötnar, Örlagadísir, sem talað er um í Eddunum, eru nöfn á þeim táknum, sem maðurinn notar. Satt best að segja eru Eddurnar ein mesta málfræðiritgerð, sem til er i eigu mannsins. Ég mun ekki fara út i það i þessari grein að reyna að útskýra þessa skoðun mína, því það yrði svo langt mál. Tilgangur þessarar greinar er að þýða Phaistos diskinn, og að því mun ég nú snúa mér, en skoðun mín á eðli Eddanna verður að biða betri tima. Hins vegar mun þessi skoðun mín styrkjast með þeirri merkingu, sem ég gef Phaistos disknum, en ég mun heimfæra i setningar i Völuspánni til útskýringar og samanburðar. A1: Ættir Atta Ar. I fyrstu vísu Völuspárinnar eru meðal annars eftirfarandi orð: Viltu, at ek, Valföðr, vel fyr telja forn spjöll fira, þau er fremst of man. Þessi setning hefur svipaða heildarmerkingu og Al. Hér er talaðu m fira, en i 61. vísu Völuspárinnar er talað um átta, sem heiti þeirra manna, sem voru á undan hinum svokölluðu sigtívum. Orðið spjöll táknar orð, mál, táknmál, eins og kemur fram i sögninni: að spjalla saman. A2: Jötunn Ógreinilegur. Völuspá V2: Ek man Jötna ár of borna, þá er forðum mik fædda höfðu. En hvað er Jötunn? Til þess að svara þessari spurningu, skulum við aðeins lita á ákveðin frumatriði táknanna. Ef stóru stafirnir eru skoðaðir með það fyrir augum að finna undirstöðumyndir þeirra, kemur i ljós, að r raða má þeim i flokka eftir því, hvort aðaleinkenni þeirra séu hringar, þríhyrningar eða ferhyrningar. Sem dæmi má nefna, að stafirnir G,B,P,Q,C og S eru bogastafir. Stafirnir V og A eru þríhyrningar, samhljóðarnir H,F,M,N mynda ferhyrninga með ummáli sinu. Stafirnir X og K hafa nokkra sérstöðu. X er eins og tveir þríhyrningar, sem mynda með hornum sinum stóran ferhyrning, og sömu sögu má reyndar segja um K, þótt það sé ekki eins skýrt. Frummyndir stafanna er sá þáttur þeirra, sem tengir þá við tölustafina, og þær rannsóknir, sem ég hef framkvæmt á því sviði sýna, að það sé mjög þýðingarmikill þáttur i uppbyggingu táknmálsins. Því miður er ég ekki kominn nægilega langt i þeim rannsóknum til þess að birta niðurstöður. Af þessum frummyndum er auðvitað ferhyrningurinn stærsta hugtakið, en það er einmitt það hugtak, sem átt er við, þegar Völuspáin talar um Jötna. Eftir útliti..jötunsins" á Phaistos disknum, sem,,baðar út öllum öngum" álit ég að þar sé átt við ..jötuninn" og bókstafinn Xbú Jötuninn ógreinilegur er því: X ógreinilegt. X hefur töluverða sérstöðu i tungumálinu. Þegar talið er, og tölustafirnir eru nefndir hver á eftir öðrum, þá er talan sex eina talan með bókstaf sem hefur myndunarstaf aftast i munninum (K). X er ávallt myndað með hljóðunum K og S, og i hvert skipti, sem þessi hljóð standa saman i orðum, mynda þau i huga mannsins táknið X. Sögnin að skera er því sama og að Xera, að skipa: Xipa, skór: Xór.Fiskur: Fixur,Skata: Xata og svo framvegis. Að bókstafurinn X sé notaður með tölunni 6 er mjög eðlilegt, því hinir tveir þríhyrningar i X-inu gera samtals töluna 6. Hins vegar hefur X-ið 4 arma og myndar ferhyrning með hornum sinum, en það eru eiginleikar bókstafsins, sem hafa töluverða þýðingu. A3: (ekki regla á) 9 Heimar, 9 Heimar, 9 Íviðjur, Mjötviðurmær, Búkur, Bak, Hugur, Höfuð. Völuspá 2. Níu man ek heima, níu viðjur, mjötvið mæran fyr mold neðan. Merki Phaistosdisksins yfir 9 Heima er eitt greinilegasta tákn hans. Það er gert út stöfunum H og E, þar sem 9 litlir ferningar eru teiknaðir á. Talan 9 er sú tala, sem gengur eins og rauður þráður i gegnum allar Eddurnar. En hvað eru: 9 Heimar, 9 Íviðjur og Mjötviðjur og Mjötviður mær. Það eru geysilega stór hugtök,sem erfitt er að útskýra með fáeinum orðum. Hinir 9 Heimar eru fyrst og fremst tölustafirnir 9: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, og allt það sem þeir standa fyrir, bæði Í heila mannsins og i umhverfi hans. Íviðjurnar eru bókstafirnir, sem eftir ákveðnum reglum tengjast hinum 9 heimum, og Mjötviður mær er viðjurnar sem metur: Heimili mannsins. Fyrstu þrjár setningarnar Phaistosdisksins fjalla um þá menn, sem voru á undan hinum svokölluðu Sigtívum Þeir áttu ekki X, og þess vegna var ekki sú regla i heilastarfsemi þeirra, eins og siðar átti eftir að verða. Völuspá 3: Var-a sandur né sær né svalar unnir. A4: Ættir Sigtíva ár. Sigtivar eru menn talnanna Sex og Tíu, eða menn þeirra talnakerfa, sem nú ríkja i heiminum : Tugakerfið i stærðfræði og útreikningum, en sexkerfið i tímatali og bogamáli. Si ivi er Xtivi. A5: Mjötviður Greindi I. Bókstafurinn I er gerður að Ybsilon . A6: Jötunn ógreinilegur i Huga Manns, Greindi Auga Vaff Konu, Búk, Nef, Munn, Augu, Bak, Hug og Höfuð A7: Jötunn ógreinilegur i Huga Manns, Greindi Auga Vaff Konu, Búk, Nef, Munn, Augu, Bak, Hug og Höfuð A8: Jötunn ógreinilegur i Huga Manns, Greindi Auga Vaff Konu, Búk, Nef, Munn, Augu, Bak, Hug og Höfuð A9: Jötunn ógreinilegur i Huga Manns, Greindi Auga Vaff Konu, Búk, Nef, Munn, Augu, Bak, Hug og Höfuð A10: óx til Vinstri Hugur. Manns. Takið eftir því, að samhljóðarnir X og Gr eru þeir stafir sem við notum yfir hugtakið að ,,Vaxa" Vaxa, vex, óx. Gróa, grær, greri. X, sem annars er svo sjaldgæft í Íslensku (alltaf skrifað SK eða KS) er hér til i sögninni að Vaxa og i tölustafnum Sex. Hugtak mannsins: að vaxa er þannig tengt því, að áhrif bókstafsins X vaxa smám saman i þróun mannsins. Litum svo aðeins á orðin Vinstri og Hægri. Fyrsti stafurinn i orðinu Vinstri er þríhyrningur og fyrsti stafurinn i orðinu Hægri er ferhyrningur. Þessar tvær frummyndir i orðunum eru mjög stór þáttur i hugtökum þeirra. Og i dag ráða þessar tvær frummyndir mjög miklu i stjórnmálum. Verkamaðurinn er auðvitað til Vinstri. Þegar sagt er á Páistosdisknum, að hugur mannsins hafi vaxið til vinstri, er meint, að áhrifa þríhyrningsins i táknmálinu hafi farið að gæta meira A11: X Hófur. Hvað er nú þetta? X getur varla verið Hófur Hests, því eins og allir vita er hófurinn hringur. En er hann bara hringur? Hófurinn er járnaður og skeifa er nelgd neðan á hann. Skeifa er Xeifa, og jafnvel þótt hún liti ekki þannig út, býr hugtakið til X i huga mannsins, sem leggst yfir Hófinn. Þegar bóndinn járnaði hestinn sinn, setti hann X yfir 0. Hið sama gerir maðurinn, þegar hann klæðir sig i Skó. Þá setur hann X yfir Ilina, þ.e. X yfir L. A12: K var Ár Drekinn i Líkama Manns. Við skulum aðeins rannsaka, hvar á líkama mannsins K er staðsett. Við höfum (af algengustu og sst notuð orðunum) Kálfi, Haka, Kinn, Kok. Kálfi er K-Alfur eða K-stafur. Ef horft er aftan á kálfa mannsins, kemur fram mynd svipuð og V. Hakan er einnig svipuð V og Kok minnir á trekt, sem á vissan hátt hefur i sér stafinn V. Kinn er aftur á móti svipuð stafnum C(K), en i Ensku er orðið Kinn hugtakið Haka. Við erum nú komin að einum mesta leyndardómi, sem til er i tungumáli okkar. 1 miklum fjölda orða, sem viðnotum, hefur stafurinn K mynd eins og V. Og til þess að gera langa sögu stutta þá hefur merkið Vi raun og veru þrjú hljóð: i hug mannsins: V,K og R.R er frumstafur þríhyrningsins, jafnvel þótt hann sé ekki ritaður þannig i dag. Nafnið Reykjavik er ekkert annað en þríhyrningar, og hrafnarnir (ravn) þrír, sem þriðji landnámsmaðurinn, Hrafna, Flóki blótaði, voru stafirnir því: R,K og V. Út frá þessari staðreynd koma ýmsar af þýðingarmestu hugtökum mannsins: Velja, KVer, KeRVi, Kvöl, VeRK ogsvo framvegis. Við segjum Kvar, þegar við spyrjum, Danir sleppa Káinu og segja bara Var? Það er rétt að benda á það hér, að hljóðið K er sennilega merkilegasta hljóð stafrófsins, því það tekur á sig allar frummyndirnar: Hringur í Q, KS i C, þríhyrningur i V, og erningur i K. En af hverju er K sem V kallað Drekinn i Líkamanum? Það er sennilega komið út frá hugtakinu að drekka. Þegar við drekkum kyngjum, við kokið, en þau hljóð, sem myndast við kokið tákna mjög oft hið óttalega og erfiða i atferli mannsins. Nefnið til dæmis orðin: Angist, Öngþveiti, Þrengsli, Dreki. A12: K var Ár Dreki i Líkama manns, þýðir þá, að stafnum hafi veriðbreytt úr V i þær myndir, sem hann hefur i dag. A13: Óx til Hægri Hugur manns. Og af þeim ástæðum óx hugurinn i átt til fernings. A14: I Fiskur. Fiskur er stafirnir F og X: FX, eða tveir ferningar. Litiðsvo á stóra stafinn fyrir i: I. Hann er líka orðinn ferningur. A15: Og þá er komin regla i táknmál mannsins: 9 Heimar, 9 1 viðjur,Mjötviður mær, Búkur, Bak, Hur, Höfuð. Við skulum nú aðeins doka við og ræða svolitið betur um frummyndirnar: hring, þríhyrning og ferning. Hvers vegna skipta þessar frummyndir svona miklu máli. Og af hverju þurfa þær að „þróast" i tungumáli mannsins? Ég reyni að svara þessu i eins stuttu máli og ég get. Nútíma sálvísindi eru sífellt að gera sér betur og betur ljóst, hve umhverfi mannsins á sér ríkan þátt i hegðun hans og atferli. Það er umhverfi mannsins, sem mótar hann að miklu meira leyti, heldur en við gerum okkur almennt grein fyrir Það skiptir með öðrum orðum, geysilega miklu máli, hvernig umhverfi mannsins er og hvernig það litur út. Tákn mannsins eru hluti af umhverfi hans. í óspilltri náttúru Jarðarinnar er litið um þríhyrninga og ferhyrninga. Þar er það fyrst og fremst hringurinn, sem öllu ræður. Fyrir fornmanninn eru þýðingarmestu hlutirnir i lifi hans hringir: Sólin, Tunglið, flestir ávextir, flest blóm, og flestar lifverur umlykjast boglinum, en ekki hornum þríhyrnings eða ferhyrnings. 1 slíku umhverfi eiga hyrningar mjög litlamöguleika til þess að hafa áhrif á manninn. Þeir eru „ljótir". Þetta lögmál lýsir sér til dæmis i því, að það fólk, sem er lengst frá því að hafa þá„meðalásjónu", sem mannkynið hefur er kallað ljótt fólk. En þá kemur inn i reikninginn hin einstaklingsbundna reynsla hvers manns „Meðalásjóna"hans er þá það meðalandlit, sem skapast af þeim andlitum, sem hann hefur séð á lífsleið sinni. „Meðalasjónan" er því afstætt hugtak, og það sem einn maður kallar ljótt, getur annar maður kallað fallegt. En það er umhverfi hvers manns fyrir sig og reynsla hans i umhverfi sinu, sem hefur skapað smekk hans. Fyrir um það bil 10.000 til 15.000 árum siðan snéri stór hluti þjóðflokka Sér að akuryrkju og kvikfjárrækt. Þeir fóru af hinu gamla veiðimannastigi sinu og gerðist akuryrkjumenn og hjarðmenn. Þetta þróunar stökk gjörbreytir „meðaltals" umhverfi þeirra. Nú verður umhverfi mannsins fullt af þríhyrningum og ferhyrningum. Hvernig eru andlit húsdýra mannsins? Kindin og Kýrin hafa andlit eins og þríhyrning i laginu á meðan andlit Hestsins er líkara ferhyrning. Er samræmi milli útlitsins og þeirra nafna, sem þessi húsdýr hafa? Kindin og Kýrin eiga stafinn K(V), o gh Hesturinn á stafinn H. Kindin er almennt líka kölluð Rolla, ÆR, Kvikfé, eða með stöfum Hrafnanna þriggja. Kötturinn er nokkuð merkilegur. Andlit hans er hringur, en beint framan á andliti hans eru skarpar linur, sem lita út eins og K, sem liggur á hliðinni Hefur þú tekið eftir því? Það verður vist seint fullmetið, hve húsdýr mannsins hafa átt stóran þátt i þróun hans. Allt fram á þessa öld hafa Þau i raun og veru verið aðalatriðin i umhverfi hans, sem mest allt starf hans snérist um, og það eru þau sem hafa mótað hann mest síðustu árþúsundirnar. Það er ekki að ástæðulausu, að Kýrin er heilög i Indlandi. Littu nú i kringum þig, lesandi góður, og sjáðu alla ferningana, sem umhverfi nútímamannsins byggist á. Einu sinni var þetta ekki svona. Og það hefur kostað manninn mikið stritað ná ferhyrningnum inn i hugar heimsins, en það er fyrst og fremst hann, sem hefur gert tæknivísindi nútímamannsins möguleg. Ég sagði áður, að táknin væru hluti af umhverfi mannsins. Af þeirri ástæðu verða þau að vera i nokkru samræmi við alla hina hlutana i umhverfi hans. Það verður að ríkja jafnvægi milli þeirra mynda, sem maðurinn sér oftast i umhverfi sinu, og þeirra mynda, sem táknin sýna. Það er af þessum ástæðum, að hægt er að segja, að þróun mannsins sé jafnframt þróun táknanna hans. Nóg i bili. Ég er nú búinn að gera grein fyrir þeim frumsjónarmiðum, sem nauðsynleg eru til þess að skilja þann texta. sém Phaistosdiskurinn hefur. Og bæði til þess að þessi grein verði ekki alltof löng og líka til þess að gefa áhugasömum mönnum tækifæri til þess að spreyta sig á þeirri gátu, sem diskurinn gefur, þá ætla ég að geyma útskýringar minar á því sem eftir er af - textanum. þar til i seinni grein. Samt sem áður ætla ég að gefa nokkra punkta. sem einfalda verkefnið svolitið 1) að hugsa er að huxa. Höll er sú mynd og kerfi, sem stafróf mannsins og talnaröð mynda i hug hans. Hljóðið K er á mörgum stöðum i stafrófi mannsins. J er skrifað eins og spegilmynd af (i. Þegar stafrófið er þulið, kemur Ð hljóðið aðeins fyrir á milli stafanna J og K: ijoðkáellemm. Phaistos skífan og þau viðhorf, sem ég nota til þess að þýða hann munu vekja margar spurningar i huga lesandans. Hvers vegna fellur Íslenskan svona vel inn i táknmál disksins? Er þetta eitthvað skylt því, sem Einar Pálsson er að gera? Eða hvað um kenningar Guðmundar frá Hofteigi og Jónasar Píramídaspá manns? Eru hugmyndir manna um efni Eddanna rangar? Er Ísland mikilvægara land, heldur en við gerum okkur grein fyrir? Og svo framvegis. Ég mun með tímanum svara þessum spurningum, ef ég fæ aðstöðu til þess. Eins og lesandinn sér, þá er ég að kirkja inn i og opna nýja heima fyrir manninn. sem með tímanum munu betur og auka hæfileika hans til þess að gera greinarmun á frumatriðum og smáatriðum. Það sem ég birti i þessari grein, er aðeins litill hluti af því sem ég hef unnið, og mín biður mjög erfitt verkefni við það að koma niðurstöðum mínum á framfæri, þar sem þær geta komið til góða. Eins og öll ný sjónarmið, verða mín sjónarmið ekki tekin með opnum örmum til að byrja með, og satt best að segja, yrði ég harðla ánægður, ef aðeins nokkrir menn myndu hringja til mín og segja við mig, að þeir væru sammála mér. Björgvin Hólm. Post not marked as liked Featured Posts Upplifa Upplifa Nú Nú Tröllin bakvið tjöldin Strengjabrúðumeistaranir. Tröllin bakvið tjöldin Strengjabrúðumeistaranir. Ég er Fáviti Ég er Fáviti Móðan Móðan Fyrstu orð manna tal og mál Fyrstu orð manna tal og mál Lifað í kerfi Lifað í kerfi Tilurð lýðræðis hænsanna Tilurð lýðræðis hænsanna Hænan og Brauðið Hænan og Brauðið Fuglarnir í Skóginum Fuglarnir í Skóginum Recent Posts Upplifa Upplifa Guð Ríki Guð Ríki Nú Nú Tröllin bakvið tjöldin Strengjabrúðumeistaranir. Tröllin bakvið tjöldin Strengjabrúðumeistaranir. Flæði Flæði Ég er Fáviti Ég er Fáviti Innrás Vitundar Innrás Vitundar Móðan Móðan Frelsis-kosningar Frelsis-kosningar Hvernig Nærist Fruma Hvernig Nærist Fruma Archive February 2019 (2)2 posts December 2018 (1)1 post November 2017 (1)1 post May 2017 (1)1 post March 2016 (1)1 post February 2016 (2)2 posts January 2016 (4)4 posts December 2015 (5)5 posts November 2015 (18)18 posts October 2015 (2)2 posts Search By Tags Eignaréttur Flæði Kerfið Land Litla gula hænan Mannky Sannleikur Vera Vit banki brauð fuglar hæna kerfi landið líf mál skógur tal tungumál Follow Us Facebook Basic Square Twitter Basic Square Google+ Basic Square © 2015 Björgvin Þór Hólm gert með Wix.com Explain